CRI, Sorpu og NMI úthlutað verkefnisstyrk úr Tækniþróunarsjóði vegna rannsókna á gösun úrgangs til framleiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti
09. mars 2011
Búnaður af sömu gerð og notaður verður í tilraunaverksmiðju CRI til að gera tilraunir með gösun úrgangsefna. Mynd frá PID Eng&Tech.
Sem hluta af verkefninu verður komið á fót aðstöðu til að umbreyta ýmsum afgangs- og úrgangshráefnum á föstu og fljótandi formi yfir í gas. Gasið sem samanstendur að mestu af kolmonoxíði (CO), vetni (H2) og koltvísýringi (CO2) verður síðan leitt í gegnum framleiðsluferli í núverandi tilraunaaðstöðu CRI og breytt í metanól. Við verkefnið mun reynsla SORPU af því að meðhöndla og forvinna ólík hráefni svo sem pappír og plast nýtast vel.
Ætlunin er að afla nægjanlegra gagna til að hægt sé að kanna möguleika á uppsetningu gösunarstöðvar í Svartsengi sem kæmi sem viðbót við metanólverksmiðju CRI sem nú er að rísa. Slík gösunarstöð mun byggja á annarar kynslóðar tækni CRI til framleiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti og nýta súrefni sem til fellur við rafgreiningu í metanólverksmiðjunni. Með þessari tækni verður unnt að framleiða hlutfallslega meira eldsneyti úr tiltæku hráefni með minni koltvísýringsútblæstr en í öðrum sambærilegum framleiðsluferlum. Gangi áætlanir eftir verður því til tækni sem getur dregið úr kostnaði við framleiðslu á fljótandi vistvænu eldsneyti, aukið endurvinnslu á úrgangi og dregið úr urðun á sorphaugum.
Verkefnisstjóri er Ómar Freyr Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Carbon Recycling International.

